Byssumaður yfirbugaður í Hnífsdal

Halldór Sveinbjörnsson

Byssumaður yfirbugaður í Hnífsdal

Kaupa Í körfu

KARLMAÐUR á sextugsaldri var yfirbugaður eftir umsátursástand við heimili í Hnífsdal aðfaranótt laugardags. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til og flutt til bæjarsins með þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF. Skömmu eftir miðnætti lenti þyrlan og á þriðja tímanum hafði sérsveitin náð stjórn á ástandinu og aflétt viðbúnaðarstigi. Maðurinn gisti fangageymslur lögreglunnar á Ísafirði en að öllum líkindum verður farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. MYNDATEXTI: Yfirbugaður - Sérsveitarmenn leiða manninn til bifreiðar lögreglunnar eftir umsátursástand á Hnífsdal aðfaranótt laugardags. Ekki kom til neinna átaka á milli lögreglu og mannsins sem gafst upp eftir samtal við sérsveit.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar