Nordica Hótel

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Nordica Hótel

Kaupa Í körfu

NORDICA hótelið í Reykjavík verður hluti af Hilton-hótelkeðjunni og mun framvegis heita Hilton Reykjavik Nordica. Samningur þar að lútandi var undirritaður í gær milli Icelandair Hotels, dótturfyrirtækis Icelandair Group, og Hilton Hotels Corporation. Undirritunin fór fram á alþjóðaþingi Hilton í Dusseldorf. Á næstu vikum verður merkingum og ýmsu varðandi starfsemi hótelsins breytt í samræmi við staðla Hilton-fyrirtækisins, samkvæmt upplýsingum frá Icelandair Group.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar