Álverið á Reyðarfirði

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Álverið á Reyðarfirði

Kaupa Í körfu

Almenn ánægja ríkir á Reyðarfirði með nýtt álver og mikil uppbygging á sér stað í bænum. Það er hugur í íbúunum, sem gefa lítið fyrir nýafstaðna atkvæðagreiðslu í Hafnarfirði; þeir eru komnir með sitt álver. Gestir geta ekki komist inn á svæði Fjarðaáls nema með sérstöku leyfi. Í varðhliði er tekið á móti þeim og þeim gert að klæða sig í skó með stáltá, skrýðast endurskinsvesti, setja upp öryggisgleraugu og skýrt er tekið fram að derið þurfi að snúa fram á hjálminum. Svo verða þeir að horfa á stutt myndband, þar sem hamrað er á nauðsyn þess að fara varlega á þessu risastóra iðnaðarsvæði. MYNDATEXTI: Fyrsta framleiðslan - Steypt eru 6.720 bakskaut og sett í botninn á 336 kerjum. Hér fylgist Hrollaugur Marteinsson með krana sem færir deiglu með bráðnu áli að skautmóti í steypuskála.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar