Laugavegur 74 fluttur

Laugavegur 74 fluttur

Kaupa Í körfu

HÚSIÐ að Laugavegi 74 var í nótt flutt úr götunni og fært til geymslu úti á Granda. Byggja á nýtt hús sem verður rúmlega þrisvar sinnum stærra en hið gamla, þótt útlit þess við Laugaveg verði hið sama. Ekki eru allir á eitt sáttir um hvort rétt hafi verið staðið að framkvæmdinni. Samkvæmt deiliskipulagi svæðisins er götumynd hússins og tveggja annarra sem liggja til hliðar við það, vernduð. MYNDATEXTI: Húsflutningar - Húsið á Laugavegi 74 var í nótt flutt frá sínum upphaflega stað í tímabundna geymslu. Á lóðinni mun síðar rísa hús sem verður mun stærra en mun líta nákvæmlega eins út frá Laugavegi séð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar