Hjartavernd

Sverrir Vilhelmsson

Hjartavernd

Kaupa Í körfu

Hjartavernd skrifaði nýlega undir samstarfssamning við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands vegna átjánda kvennahlaups ÍSÍ sem fram fer á eitt hundrað stöðum hérlendis sem erlendis laugardaginn 16. júní. Yfirskrift hlaupsins í ár er "Hreyfing er hjartans mál", en markmið samstarfsins er að vekja athygli á starfi Hjartaverndar og beina kastljósinu að konum og kransæðasjúkdómum, einkennum og áhættu, enda eru hjarta- og æðasjúkdómar ekki síður vandamál kvenna en karla. MYNDATEXTI: Áhættumatið - Konur, sem hreyfa sig að jafnaði hálftíma á dag, minnka líkurnar á kransæðastíflu um 30%, upplýsti Bolli Þórsson læknir m.a. Sigrúnu Stefánsdóttur um sem kom einkar vel út úr áhættumati Hjartaverndar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar