Björgólfur Thor Björgólfsson

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Björgólfur Thor Björgólfsson

Kaupa Í körfu

BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðaráss, segir að upp hafi verið kominn trúnaðarbrestur í samstarfi hans og Þórðar Más Jóhannessonar, fráfarandi forstjóra. Þá væri ljóst að óvissa og átök meðal stjórnarmanna hafi verið farin að hafa mjög neikvæð áhrif á rekstur og ímynd félagsins og því hafi hann sem stjórnarformaður ákveðið að bregðast við. Þetta kom fram á blaðamannafundi í gærmorgun en eins og Morgunblaðið hefur greint frá var Friðrik Jóhannsson ráðinn forstjóri í stað Þórðar sem hefur verið forstjóri frá því í haust. MYNDATEXTI: Björgólfur Thor sagði athygli forstjóra hafa beinst um of að átökum í fyrirtækinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar