Valur - Víkingur

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Valur - Víkingur

Kaupa Í körfu

ATLI Sveinn Þórarinsson var fyrirliði Valsmanna þegar þeir sigruðu Víkinga, 3:1, í gærkvöld, á meðan Sigurbjörn Hreiðarsson vermdi varamannabekkinn. Atli var heldur ófrýnilegur, með bólgið auga eftir átökin, en kampakátur í leikslok. "Það var kominn tími á að vinna Víkingana. Við höfum átt í erfiðleikum með þá, fengum 1 stig gegn þeim í fyrra og töpuðum fyrir þeim í bikarnum, en þetta gekk vel í dag og féll okkar megin og við erum mjög ánægðir með þessi stig." MYNDATEXTI: Markahæstur - Helgi Sigurðsson skoraði tvívegis fyrir Valsmenn þegar þeir lögðu Víkinga, 3:1, í gærkvöld og er markahæstur í Landsbankadeild karla. Hér reyna þrír Víkingar að stöðva Helga á leið hans að marki þeirra og boltinn virtist fara í hönd Hermanns Albertssonar, númer 16. 3

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar