Umferðarslys á Breiðholtsbraut

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Umferðarslys á Breiðholtsbraut

Kaupa Í körfu

TVÆR konur liggja á gjörgæsludeild Landspítala – háskólasjúkrahúss eftir harðan árekstur á Breiðholtsbraut, til móts við Rjúpufell, rétt fyrir klukkan tíu í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni eru báðar konurnar töluvert mikið slasaðar og með mikla áverka. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins komu bifreiðarnar hvor úr sinni áttinni og rákust á, en ekki liggur ljóst fyrir hver orsökin er. Tveir tækjabílar voru sendir á staðinn, auk neyðarbíls og tveggja sjúkrabíla. Beita þurfti klippum til að ná konunum úr bílunum sem voru afar illa farnir eftir áreksturinn. MYNDATEXTI: Slæm aðkoma - Bifreiðarnar voru mjög illa farnar eftir áreksturinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar