Heilsugæslustöðin á Vopnafirði

Jón Sigurðsson

Heilsugæslustöðin á Vopnafirði

Kaupa Í körfu

Vopnafjörður | Heilsugæslustöðinni á Vopnafirði og Bakkafirði hefur verið færður að gjöf stafrænn framköllunarbúnaður fyrir röntgenmyndatökur. Búnaðurinn kostar um fjórar milljónir króna og er gjöf frá HB Granda, Bílum og vélum, Mælifelli, Kiwanisklúbbnum á Vopnafirði og Helgu Jónsdóttur. Baldur Friðriksson, læknir á Vopnafirði, segir búnaðinn koma til með að auðvelda greiningu enda sé hægt að senda myndirnar stafrænt t.d. á FSA og fá sérfræðiálit á skömmum tíma. Þessi búnaður hentar einkar vel á stað eins og Vopnafirði en það getur tekið um eina og hálfa klukkustund að koma sjúklingi á spítala og svo getur vetrareinangrun sett strik í reikninginn. MYNDATEXTI Tækni Baldur Friðriksson læknir á Vopnafirði við framköllunarbúnaðinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar