Tónleikar í Iðnó

Sverrir Vilhelmsson

Tónleikar í Iðnó

Kaupa Í körfu

LAGIÐ "Hold Me Closer to Your Heart" er tvímælalaust einn af sumarsmellunum í ár. Hljómsveitin Motion Boys á veg og vanda af því lagi, en poppspekúlantar og tónlistarunnendur bíða spenntir eftir fyrstu plötu þeirra félaga. Nú gefst áhugasömum kjörið tækifæri til að heyra meira í sveitinni; hún mun hita upp fyrir danspönkarana í The Rapture á tónleikum þeirra á NASA við Austurvöll hinn 26. júní. MYNDATEXTI: Stuð - Síðustu tónleikar Motion Boys voru svo rafmagnaðir að hljómkerfið gaf sig í þriðja lagi hennar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar