Bílslys í Hörgárdal

Þorgeir Baldursson

Bílslys í Hörgárdal

Kaupa Í körfu

Fullorðin kona var flutt alvarlega slösuð með sjúkraflugi á gjörgæsludeild Landspítalans eftir umferðaróhapp við bæinn Neðri-Vindheima í Hörgárdal. Slysið varð með þeim hætti að tveir bílar skullu saman um hádegisbil í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru tvær konur fluttar á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri en ekki voru farþegar í bílunum. Er önnur konan á sjötugsaldri en hin á níræðisaldri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar