Tónleikar AIR og Kate Havnevik

Sverrir Vilhelmsson

Tónleikar AIR og Kate Havnevik

Kaupa Í körfu

UNDIRRITAÐUR sótti tónleika með Air í Lundúnum fyrir þremur árum. Sveitin sem hitaði upp á þeim tónleikum var með þeim leiðinlegri sem ég hafði heyrt í á sviði og eftir nokkur lög kaus ég svefninn fram yfir Joy Zipper frá Bandaríkjunum. Það hefði ég einnig betur gert á tónleikum Air í Laugardalshöll á þriðjudag. Hin norska Kate Havnevik hitaði upp með nokkrum lögum og reyndi eftir fremsta megni að líkjast Björk eins og hún hljómaði fyrir tíu árum, en lögin hljómuðu fremur eins og Enya að rembast við að vera svöl og í takt við tímann. MYNDATEXTI: Fjólublátt - Ljóshafið á tónleikunum var einkar viðeigandi undir tónum Air.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar