Ásgerður Júníusdóttir

Ásgerður Júníusdóttir

Kaupa Í körfu

"Ég hef verið að velta fyrir mér óperuforminu og ekki í fyrsta skipti," segir Ásgerður Júníusdóttir söngkona. "Þetta er ótrúlega spennandi listform sem er þó staðnað að svo mörgu leyti og bíður eftir endurnýjun og öðruvísi hugsun. Auðvitað er sjálfsagt að varðveita arfinn og setja upp klassískar óperur með glæsibrag, það er alger óþarfi að gera lítið úr þessum oft yndislegu og stórbrotnu verkum, en ég hef í mörg ár látið mig dreyma um íslenzkar óperur, framsæknar og spennandi. MYNDATEXTI: Frumleg - Ásgerður Júníusdóttir hefur meira gaman af að fara nýjar leiðir en feta troðnar slóðir. Hana dreymir um framsæknar íslenzkar óperur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar