Dagný Guðmundsdóttir

Sverrir Vilhelmsson

Dagný Guðmundsdóttir

Kaupa Í körfu

MINJASAFN Reykjavíkur opnar í dag fræðslustofu um viðgerð og endurgerð eldri húsa. Verkefnið er unnið í samvinnu við Húsafriðunarnefnd ríkisins og IÐUN- fræðslusetur. Fræðslumiðstöðin er staðsett í Kjöthúsinu, en það er annað tveggja svokallaðra Vopnafjarðarhúsa á Árbæjarsafni. Fræðslustofan er framhald af sýningu sem var sett upp á Árbæjarsafni á síðasta ári og ber nafnið "Saga byggingatækni í Reykjavík frá 1840-1940". MYNDATEXTI: Kjöthúsið - Dagný Guðmundsdóttir hefur unnið að því að koma fræðslumiðstöðinni á fót. Hún verður staðsett í Kjöthúsinu á Árbæjarsafni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar