Hrönn Árnadóttir og hundar hennar
Kaupa Í körfu
Þegar yngri sonurinn Hafþór Breki, sem nú er orðinn fimmtán ára, var í leikskóla héldu fóstrurnar hans að við ættum fullt af hundum því Hafþór var duglegur við að búa til sögur og teikna myndir af öllum ímynduðu hundunum á heimilinu. Hann talaði mjög frjálslega um "hundana" sína eins og þeir væru hluti af hans daglegu tilveru og heimilislífi. Hundahaldið var því búið að vera draumur hans lengi þegar við ákváðum að taka íslenskan sveitablending inn á heimilið sem var yndislegur og frábær í alla staði. Við áttum Brúnó í fjögur ár, en þá veiktist hann og dó og á eftir fylgdi ægileg sorg í fjölskyldunni," segir Hrönn Arnarsdóttir, framhaldsskólakennari og húsmóðir í Garðabæ, um upphaf hundaáhuga fjölskyldunnar. MYNDATEXTI: Hundamamman - Tolli fylgir mér eftir hvert fótmál á meðan Seigur er mikið partýljón, segir Hrönn Arnarsdóttir.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir