Fasteignasalan Húsakaup - Arnarneshæð

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Fasteignasalan Húsakaup - Arnarneshæð

Kaupa Í körfu

FASTEIGNASALAN Húsakaup opnaði nýlega söluskrifstofu á Hofakri 1 á Arnarneshæð. Þar getur fólk skoðað íbúðir sem í boði eru hjá fyrirtækinu. Jón Gretar Jónsson, framkvæmdarstjóri, segir að viðtökur fólks við nýja hverfinu hafi verið góðar og stöðugur straumur fólks sé til að skoða eignirnar. Boðið er upp á fjölbreytt úrval íbúða, frá tveggja til fjögurra herbergja íbúða í lyftuhúsnæði með bílageymslum, en auk þess hefur Húsakaup hafið sölu á raðhúsum sem afhent eru tilbúin til innréttinga. MYNDATEXTI: Sýningaríbúð - Hægt er að skoða fullbúna íbúð á Arnarnesi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar