Bubbi Morthens 50 ára

Bubbi Morthens 50 ára

Kaupa Í körfu

GEISLADISKUR með upptökum frá afmælistónleikum Bubba Morthens 06.06.06 situr á toppi Tónlistans þessa vikuna. Arnar Eggert Thoroddsen, gagnrýnandi Morgublaðsins, hampaði plötunni á dögunum og hafði meðal annars þetta að segja: "Einn af kostum plötunnar er að allir hnökrar og losaraheit í spilamennsku fá að halda sér. Þetta er því "lifandi" tónleikaplata, eins og þær eiga að vera. Svitanum, æðinu og taumleysinu er leyft að leka út til okkar sem heima sitjum. Platan - eins og höfundur hennar - kemur til dyranna eins og hún er klædd."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar