Akureyrarflugvöllur

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Akureyrarflugvöllur

Kaupa Í körfu

BEINU flugi Iceland Express frá Akureyri til Kaupmannahafnar í vor hefur verið mjög vel tekið meðal Akureyringa og nærsveitunga, skv. upplýsingum frá Iceland Express. MYNDATEXTI: Tekur bærinn við rekstri vallarins? LENGI hefur verið rætt um að lengja flugbrautina á Akureyrarflugvelli og í umræðum bæjarstjórn á dögunum kom fram að bærinn hefði áhuga á að taka að sér rekstur vallarins af Flugstoðum, ef brautin yrði lengd og aðstæður bættar. Þetta myndi bærinn gera til þess að efla starfsemina og markaðssetja völlinn enn frekar erlendis en gert hefur verið til þessa, í því skyni að fjölga ferðamönnum og efla ferðaþjónustu á svæðinu almennt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar