Breiðablik - Valur 0:4

Sverrir Vilhelmsson

Breiðablik - Valur 0:4

Kaupa Í körfu

ÞAÐ gekk á ýmsu á Kópavogsvelli í gærkvöldi þegar ósigraðar Valsstúlkur sóttu Blika heim. Kópavogsliðið, sem talið var líklegt til að veita Val verðuga mótspyrnu, gerði það fram eftir leik en enginn má við margnum og þegar tveir Kópavogsbúar voru reknir í bað bætti Valur við tveimur mörkum og vann 4:0. Við tapið seig Breiðablik niður um eitt sæti, í það fjórða, en Valur skaust á topp deildarinnar með 12 stig eftir 4 leiki, jafnmörg og KR, en Valur er með betra markahlutfall. MYNDATEXTI: Varist - Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir markvörður Blika hafði í nógu að snúast gegn Val. Hér hefur hún hirt boltann af Vanja Stefanovic, sóknarmanni Vals.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar