Tónleikar á Landspítala

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Tónleikar á Landspítala

Kaupa Í körfu

PARA-DÍS heitir einn af skapandi sumarhópum Hins hússins, skipaður þeim Hafdísi Vigfúsdóttur flautuleikara og Kristjáni Karli Bragasyni píanóleikara. Þau hafa staðið að verkefninu Tónaregni í Reykjavík sem hófst í þessum mánuði og stendur út júlí. Verkefnið er á vegum Hins hússins og styrkt af Reykjavíkurborg. Tónaregn felst í því að fluttir verða tónleikar á leikskólum, dvalarheimilum aldraðra og sjúkrahúsum en auk þess verða haldnir tónleikar hér og þar um borgina. MYNDATEXTI: para-DÍS - Dúóið lék valin, klassísk verk á Landspítalanum í gær. Kristján Karl Bragason og Hafdís Vigfúsdóttir munu halda fjölda tónleika næstu vikur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar