Sigrún Hrönn ÞH 36

Hafþór Hreiðarson

Sigrún Hrönn ÞH 36

Kaupa Í körfu

Útgerðarfélagið Barmur ehf. á Húsavík fékk nú í vikunni afhentan nýjan línubeitningavélbát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Að útgerðinni stendur Ingólfur Árnason. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Sigrún Hrönn ÞH 36 og leysir af hólmi tvo minni Cleopatra-báta sem báru sömu nöfn. Nýi báturinn er 15 brúttótonn og 11,9 brúttórúmlestir og er í krókaaflamarkskerfinu. MYNDATEXTI: Nýtt skip - Línubeitningavélbáturinn Sigrún Hrönn ÞH.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar