Ólöf Arnalds

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Ólöf Arnalds

Kaupa Í körfu

STÓRTÓNLEIKAR verða á NASA í kvöld til styrktar náttúruverndarsamtökunum Saving Iceland, sem standa fyrir ráðstefnu um hnattrænar afleiðingar stóriðju og stórstíflna helgina 7.-8. júlí á Hótel Hlíð, Króki í Ölfusi. Á tónleikunum koma meðal annars fram Ólöf Arnalds, múm, Evil Madness, Dj Árni Sveins, Dimma, Bogomil Font og Millarnir, Rúnar Júl, Magga Stína, Retro Stefsson og fleiri. Miðaverð er 2.500 kr. og miðasala í 12 tónum, Hljómalind, Smekkleysu og við innganginn. Þá verður myndlistaruppboð í Galleríi Start Art á Laugavegi 12 næstkomandi fimmtudag kl. 17.00 til styrktar sama málefni. Margir landsþekktir listamenn gefa verk til uppboðsins, meðal annarra Magnús Pálsson, Erling Klingenberg, Kristinn Pálmason, Áslaug Thorlacius og margir fleiri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar