Herbergi unglings

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Herbergi unglings

Kaupa Í körfu

Unglingsárin eru tími breytinga. Þegar barn þroskast til unglings er margt sem á sér stað í útliti jafnt sem skapgerð. Svo á einnig við um umhverfi unglingsins. Bergdís Eggertsdóttir tók eftir því þegar fósturdóttir hennar, Sunneva Björk Grettisdóttir, nálgaðist fjórtánda aldursárið. "Við fórum að taka eftir því að það var orðið erfiðara að fá Sunnevu Björk til að taka til í herberginu sínu, enda var vart stígandi inn í herbergið fyrir alls kyns dóti og leikföngum sem hún var löngu hætt að leika sér með," segir Bergdís. Bergdís og eiginmaður hennar, Grettir Sigurðarson, hafa búið ásamt börnum á Sunnuvegi í Hafnarfirði í fjögur ár. Herbergi Sunnevu Bjarkar hafði staðið óbreytt öll þau ár. Á 14 ára afmælinu hennar, 20. maí síðastliðinn, ákváðu Grettir og Bergdís hins vegar að gefa henni nýtt herbergi í afmælisgjöf. MYNDATEXTI Skipulagning Nú er mun auðveldara fyrir Sunnevu að þrífa herbergið sitt. Á veggnum hengur korktafla sem veggfóðruð er í stíl við herbergið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar