Ía - Valur

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Ía - Valur

Kaupa Í körfu

MARK Skagamannsins Bjarna Guðjónssonar gegn Keflvíkingum í Landsbankadeildinni í knattspyrnu í fyrrakvöld hefur vakið mikla umræðu í þjóðfélaginu. Löglegt en siðlaust segja margir en eftir að Keflvíkingar höfðu spyrnt boltanum út af svo hægt væri að hlúa að meiddum leikmanni ÍA fengu þeir ekki boltann frá Skagamönnum eins og þeir flestir reiknuðu með. Og það sem verra er, og hleypti eðlilega illu blóði í Keflvíkinga, var að Bjarni spyrnti boltanum yfir markvörð Keflvíkinga og í netið fór hann. Bjarni hefur beðist afsökunar á að hafa skorað markið en hann segist hafa ætlað að þruma boltanum aftur fyrir endamörk. MYNDATEXTI Skagamenn fagna marki í Landsbankadeildinni í sumar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar