Kvennaklósett á Hótel Sögu

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Kvennaklósett á Hótel Sögu

Kaupa Í körfu

HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær pilt á tvítugsaldri af ákæru um kynferðisbrot gegn stúlku á svipuðum aldri. Mikill munur var á framburði piltsins og stúlkunnar um hvað átti sér stað og þrátt fyrir að framburður stúlkunnar hefði verið metinn trúverðugur var ekki hægt að fallast á að pilturinn hefði beitt ofbeldi til að koma fram vilja sínum. Atvikið átti sér stað á kvennasalerni í kjallara Hótel Sögu aðfaranótt 17. mars sl. og bar stúlkan fyrir dómi að pilturinn hefði elt hana inn á salernið. Hefði maðurinn neytt hana til þess að fara inn á annan salernisbásinn með því að ýta henni þangað. Hann hefði í kjölfarið tekið niður um hana sokkabuxur og nærbuxur og neytt hana til samræðis.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar