Veiðimyndir

Einar Falur Ingólfsson

Veiðimyndir

Kaupa Í körfu

EFTIRLÆTIS vefmiðlar veiðimanna munu þessa dagana vera þeir sem spá fyrir um veðrið. Á meðan þorri landsmanna fagnar viðvarandi þurrki og blíðu, bíða veiðimenn, og þá sérstaklega þeir sem hyggjast veiða lax, eftir veðrabrigðum og mikilli rigningu. Því margir trúa því að þá komi í ljós hvort einhver lax gangi að ráði, eða hvort spár hinna svartsýnustu rætist og laxveiðisumarið verði hreinlega lélegt. MYNDATEXTI Bleikja í Stóru-Laxá Engir laxar fundust á neðstu svæðum Stóru-Laxár í vikunni en Sölvi Ólafsson landar hér vænni bleikju nærri Gunnbjarnarhyl.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar