Seabear

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Seabear

Kaupa Í körfu

HÚN var dimm og drungaleg stemningin sem ljósmyndari Morgunblaðsins rambaði inn á í Iðnó á fimmtudagkvöldið. Þar stigu á svið Seabear, Hudson Wayne og tónlistarkonan Kira Kira sem er nýkomin af tónleikaferðalagi um Bandaríkin og Finnland en í Finnlandi tók hún einnig upp plötu með hljómsveit sinni Our Map the The Monster Olympics. Seabear hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frumraun sína The Ghost That Carried Us Away og lék nokkur lög af henni en Hudson Wayne bar á borð glænýja kúrekamúsík með tilheyrandi eyðimerkurþunga. MYNDATEXTI: Seabear - Sveitin hefur vakið töluverða athygli fyrir frumburð sinn The Ghost That Carried Us Away.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar