Nýjar íslenskar kartöflur hjá ÚIlfari

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Nýjar íslenskar kartöflur hjá ÚIlfari

Kaupa Í körfu

Kartöflubændur í Þykkvabænum standa nú í ströngu á nóttunni við að taka upp kartöflur svo að hægt sé að senda þær glænýjar til Reykjavíkur á morgnana. Fyrsta sending kom í verslanir í gærmorgun. Birkir Ármannsson á Brekku hefst handa um miðnætti til þess að geta sent nýuppteknar kartöflur til borgarinnar klukkan sex á morgnana, og verður sá háttur hafður á næstu vikurnar. "Það verða nýjar kartöflur á hverjum degi þangað til í september þegar þær fara í hús," segir Birkir. MYNDATEXTI Þórunn Sveinbjarnardóttir bragðaði á glænýjum kartöflum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar