Magnús Pálsson

Friðrik Tryggvason

Magnús Pálsson

Kaupa Í körfu

Það telst til ánægjulegri tíðinda að frétta af nýrri sýningu Magnúsar Pálssonar myndlistarmanns, en hann opnar sýningu í Gallerí i8 við Klapparstíg í dag. Það er óhætt að telja Magnús einn af máttarstólpum íslenskrar samtímalistar, fáir íslenskir listamenn hafa verið jafn virkir og fjölbreytilegir í list sinni. Hann finnur verkum sínum farveg í skúlptúrum, innsetningum, gjörningum, myndböndum, hljóðverkum, raddskúlptúrum og svo mætti áfram halda og ekki má gleyma að hann fékkst lengi við kennslu og var virkur í félagsmálum myndlistarmanna MYNDATEXTI Bleikar tær Magnús Pálsson segist alltaf hafa haft gaman af því að vinna með klisjur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar