Breiðablik - HK bikara

Brynjar Gauti

Breiðablik - HK bikara

Kaupa Í körfu

ALLT leit út fyrir að HK ætlaði að takast að slá Breiðablik út úr Visa-bikarkeppninni í gærkvöldi þegar Kópavogsliðin mættust. HK komst yfir eftir hræðileg varnarmistök í vörn Blika og allt virtist stefna í sigur HK. Varamenn Breiðabliks voru þó á öðru máli og hver um sig gerði eitt mark og Blikar unnu 3:1 í framlengingu og eru komnir í átta liða úrslit. Sanngjarn sigur þar sem Breiðablik var mun sterkari aðilinn í leiknum, líka á áhorfendapöllunum þar sem þeir stóðu sig vel og raunar stuðningsmenn HK líka. MYNDATEXTI Brot Srdjan Gasic, leikmaður Breiðabliks, brýtur illa á Oliver Jaeger. Árni Kristinn Gunnarsson fylgist með.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar