FH - ÍA

Brynjar Gauti

FH - ÍA

Kaupa Í körfu

SKAGAMENN halda áfram að koma mörgum á óvart með góðum úrslitum, og á laugardag náði liðið 1:1 jafntefli gegn Íslandsmeisturum FH. Leikur liðanna, sem fram fór á Kaplakrikavelli, var sá fyrsti í 10. umferð Landsbankadeildarinnar. FH komst snemma yfir í leiknum og verðskuldaði forystuna enda sótti liðið mun meira framan af leik, en Skagamenn gáfust ekki upp og þegar um tíu mínútur lifðu leiks jöfnuðu þeir leikinn, og þar við sat. FH-ingar halda enn toppsætinu en Valur getur minnkað forskotið í tvö stig með sigri á Fram í kvöld. MYNDATEXTI FH-ingurinn Tryggvi Guðmundsson fellur hér við eftir viðskipti sín við varnarmenn ÍA. Vítaspyrna var dæmd og úr henni skoraði Tryggvi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar