Flugvallarsvæðið í Keflavík

Flugvallarsvæðið í Keflavík

Kaupa Í körfu

VEGNA frétta um stöðu rafmagnsöryggismála á fyrrum varnarsvæði á Keflavíkurflugvelli vilja SART, Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði, taka fram eftirfarandi: "Hafin er vinna við endurbætur á rafkerfi íbúða á svæðinu í samræmi við íslenskar reglur um rafmagnsöryggi og fyrirmæli Neytendastofu. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hefur nú þegar samið við nokkra löggilta rafverktaka varðandi framkvæmd fyrsta hluta verksins. Verkið felur m.a. í sér breytingu á spennu úr 110 í 230 volt, settar verða nýjar greinatöflur í íbúðir með sjálfvirkum varnarbúnaði og lekastraumsrofavörn, skipt verður um tengla og einnig ljósabúnað þar sem við á. Rafverktakar munu venju samkvæmt tilkynna verk sín til Neytendastofu sem síðan mun láta framkvæma skoðun á þeim. Ljóst er að verkefni sem varða uppfærslu á rafkerfi Keflavíkurflugvallar eru af þeirri stærð að nauðsynlegt verður að áfangaskipta og forgangsraða verkþáttum þannig að umbreytingin verði markviss, hagkvæm og örugg. Rafverktakar leggja ríka áherslu á að verkið verði unnið í náinni samvinnu við Neytendastofu og öryggisfulltrúa Þróunarfélagsins sem skipaður verður á næstu dögum. Þrátt fyrir það sem að framan greinir telja samtökin að ná hefði mátt markmiðum Þróunarfélagsins varðandi framkvæmdir á svæðinu í samvinnu við Neytendastofu án umdeildrar lagasetningar."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar