Íslenska kvennalandsliðið U-19 á æfingu fyrir Evrópumót

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Íslenska kvennalandsliðið U-19 á æfingu fyrir Evrópumót

Kaupa Í körfu

ÚRSLITAKEPPNI Evrópumótsins í knattspyrnu stúlkna, 19 ára og yngri, hefst í Reykjavík í dag með fjórum leikjum. Formlegur setningarleikur þess, á milli Íslands og Noregs, fer fram á Laugardalsvelli kl. 19.15 en þá verður þegar þremur viðureignum lokið. Auk Íslands og Noregs taka landslið Danmerkur, Þýskalands, Spánar, Frakklands, Póllands og Englands þátt í keppninni. Leikið verður í tveimur fjögurra liða riðlum og verður íslenska landsliðið í riðli með þýska og danska landsliðinu auk þess norska. MYNDATEXTI Flautað til leiks Keppni í úrslitum Evrópumóts landsliða, 19 ára og yngri í kvennaflokki, hefst hér á landi í dag. Íslenska liðið tekur á móti því norska á Laugardalsvelli kl. 19.15. Hér eru þær Rúna Sif Stefánsdóttir og Fanndís Friðiksdóttir, á æfingu fyrir keppnina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar