Tónleikar

(C) MOTIV-MYND, Jón Svavarsson

Tónleikar

Kaupa Í körfu

PAMELA de Senzi flautuleikari og Rúnar Þórisson gítarleikari halda tónleika í Hömrum á Ísafirði kl. 20 annað kvöld. Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð sumartónleika Tónlistarfélags Ísafjarðar. Efnisskráin er fjölbreytt, m.a. verða leikin verk eftir Ernesto Coredero, Eugéne Bozza og ísfirska tónskáldið Jónas Tómasson. Pamela og Rúnar hafa leikið saman í nær tvö ár með áherslu á tónlist frá Suður-Evrópu og Suður-Ameríku. Þau eru nýkomin úr tónleikaför til Ítalíu þar sem þau hlutu lofsverða gagnrýni í ítölskum dagblöðum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar