FH - HB frá Færeyjum

FH - HB frá Færeyjum

Kaupa Í körfu

ÍSLANDSMEISTARALIÐ FH átti ekki í vandræðum með að leggja HB frá Færeyjum á Kaplakrikavelli í gær í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Matthías Vilhjálmsson skoraði tvívegis í 4:1-sigri Hafnarfjarðarliðsins en liðin eigast við að nýju í Þórshöfn eftir tæplega viku. Sigur FH var síst of stór. "Við vorum mun betri en andstæðingar okkar. Þeirra veikleiki var varnarlínan og ég hefði viljað fá eitt mark í viðbót – þá hefði ég verið mun rólegri fyrir síðari leikinn í Færeyjum," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, í leikslok

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar