Golf Hvaleyrarvöllur

Sverrir Vilhelmsson

Golf Hvaleyrarvöllur

Kaupa Í körfu

GOLFVELLIR landsins voru þéttskipaðir í gær, eins og þeir hafa raunar verið allan júlímánuð. Talsmenn golfvallanna segja að tímarnir fullbókist iðulega snemma á morgnana, en fólk sé farið að spila nánast allan sólarhringinn. Gísli Páll Jónsson, vallarstjóri á Grafarholtsvelli, segir algengt að fólk mæti seint á kvöldin eftir vinnu og taki einn hring. "Svo höfum við rekið okkur á það þegar við mætum til vinnu rétt fyrir sjö á morgnana, að þá er fólk sem hefur mætt eldsnemma að klára hringinn." MYNDATEXTI Litríkar Bleiki bikarinn er meðal margra fjölbreytilegra móta í sumar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar