Messa með miðaldasniði

Sverrir Vilhelmsson

Messa með miðaldasniði

Kaupa Í körfu

KIRKJUGESTIR í Viðey upplifðu sérstaka guðsþjónustu í gær en þar var messað með miðaldasniði fyrir fullu húsi. Þetta hefur verið gert einu sinni á sumri undanfarin ár en í eynni er helgihald oft mjög sérstakt og tilefnisbundið. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson prestur í Dómkirkjunni þjónaði fyrir altari enda er löng hefð fyrir því að dómkirkjuprestar sinni messuhaldi í Viðey. "Við höfum verið með ýmsar guðsþjónustur sem tengjast náttúru og sögu í gegnum árin. Nú bar svo vel í veiði að við fengum Voces Thules til að syngja í messunni. Þeir sungu latneskan messusöng og við tengdum það þeim gregórsöng sem við erum vön." MYNDATEXTI Prósessía Voces Thules hófu upp raddir sínar á göngunni frá Viðeyjarstofu til kirkju. Sönghópurinn hefur sérhæft sig í flutningi miðaldatónlistar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar