Krakkar í rigningu

Brynjar Gauti

Krakkar í rigningu

Kaupa Í körfu

KRAKKAR í Reykjavík hafa ekki haft mörg tækifæri til að ösla í pollum í sumar enda hefur tæpast komið dropi úr lofti og margir hafa horft áhyggjufullir á grasið sölna í sólskininu. Árbæingar fengu loksins yfir sig nokkrar hressandi hitaskúrir seinnipartinn í gær. Það hellirigndi á köflum, jafnt á þyrstan gróður og vegfarendur sem reyndu að forða sér undan úrhellinu. Það stoðaði lítið því allir sem voru á annað borð staddir utandyra gegnblotnuðu á örskotsstundu. Þessir léttklæddu strákar sættu sig vel við orðinn hlut og gerðu enga tilraun til þess að sleppa undan rigningunni. Nýttu þeir þetta kærkomna tækifæri til þess að hoppa í pollum og smakka á rigningunni. Ekki er annað að sjá en þeim hafi fundist hún góð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar