Smíðavellir

Svanhildur Eiríksdóttir

Smíðavellir

Kaupa Í körfu

Reykjanesbær | "Þetta er búið að vera mjög gaman enda alltaf gott veður." Um þetta voru viðmælendur blaðamanns sammála þegar hann heimsótti smíðavelli Reykjanesbæjar í vikunni. Húsin báru þess merki að einmuna veðurblíða hefur verið í bænum í sumar, því víða voru sólpallar. Svo virðist sem smíðaáhuginn sé ekkert meiri hjá strákum en stelpum, því kynjahlutfallið virtist nokkuð jafnt. Skátafélagið Heiðarbúar hefur séð um rekstur smíðavalla í sumar í samstarfi við Reykjanesbæ. Starfsemin byrjaði 4. júlí síðastliðinn og henni lýkur í lok þessarar viku. Að sögn Bergþóru Ólafar Björnsdóttur, eins foringja smíðavallanna er þátttaka búin að vera mjög góð. MYNDATEXTI Hilmar Bragi Bárðarson foreldri aðstoðar við málningarvinnuna. Bárður Sindri, sonur hans, mundar sögina en vinkonurnar Magnea Guðný Stefánsdóttir og Aníta Ósk Guðbjargardóttir stjórna verkinu. Aron Ingi Ragnarsson er í hlutverki kaupmannsins

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar