Samkaup stækkar og styrkir félög

Kári Jónsson

Samkaup stækkar og styrkir félög

Kaupa Í körfu

Laugarvatn | Verslun Samkaupa-strax sem staðsett er á Laugarvatni hefur nú verið stækkuð um helming og býður nú einnig uppá grill og pizzur. Í tilefni af formlegri opnun nýja húsnæðisins nú á dögunum var íbúum á Laugarvatni og viðskiptavinum boðið til opnunarveislu í versluninni. Þar færði Sturla Eðvarðsson framkvæmdastjóri Samkaupa peningastyrki til Ungmennafélags Laugdæla og Söngkórs Miðdalskirkju að upphæð 100 þúsund til hvors félags. MYNDATEXTI Tónlist Kjartan Már Kjartansson, framkv.stj verslunarsviðs Samkaupa, spilaði á fiðlu með hljómsveit heimamanna á Laugarvatni og Söngkór Miðdalskirkju við vígslu nýja verslunar og þjónusturýmisins á Laugarvatni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar