Ný hurð á Hótel Borg

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Ný hurð á Hótel Borg

Kaupa Í körfu

SKIPT hefur verið um hurð í aðalinngangi Hótel Borgar. Í stað gömlu viðarhverfihurðarinnar hefur verið komið upp nýrri hurð úr krómuðu stáli og gleri. Á næstu dögum verður síðan sett upp skyggni í stíl fyrir ofan nýju hurðina. "Gamla hurðin hefur verið sett í geymslu, enda vissulega ágæt hurð og falleg," segir Aðalsteinn Karlsson, einn eigenda Hótel Borgar, í samtali við Morgunblaðið, og bendir á að gamla hurðin hafi ekki uppfyllt nútímakröfur um flóttaleið komi upp eldur í hótelinu og því hafi þótt ástæða til að skipta henni út. Aðra meginástæðu þess að eigendur völdu að skipta gömlu hurðinni út fyrir nýja segir Aðalsteinn vera þá að gestir komust ekki í gegnum gömlu hverfihurðina með töskur sínar. "Gestir þurftu þannig ýmist að fara inn um bakdyr eða hliðardyr og það var auðvitað mjög óskemmtilegt," segir Aðalsteinn og tekur fram að nýir hótelrekendur hafi gert kröfu um að skipt yrði um hurð til að auðvelda aðgengi gesta. MYNDATEXTI Nýir tímar Nýja hurðin auðveldar aðgengi gesta

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar