Margrét Kröyer

Margrét Kröyer

Kaupa Í körfu

Það er búið að vera mikið stress í gangi að undanförnu hjá mér þannig að það eina sem maður þráir núna er að geta slakað pínulítið á. En svona undir venjulegum kringumstæðum vil ég geta vaknað á morgnana til að setjast út í sól með góðan kaffibolla og Moggann mér við hlið. Svo væri ekki úr vegi að fara í góðan göngutúr eða út að hjóla og geta dúllað sér svolítið í garðinum. Að því búnu væri gaman að skreppa eitthvað á bílnum því hér er fullt af fallegum stöðum allt í kring. Um kvöldið þegar kyrrð og ró færist yfir væri svo toppurinn á tilverunni á góðri sumarhelgi að bregða sér í heita pottinn með góðan öllara eða kælt hvítvín," segir Margrét Kröyer, verkefnastjóri Húsavíkurhátíðar, sem nú stendur sem hæst.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar