Ritstjóri í Grímsey

Helga Mattína

Ritstjóri í Grímsey

Kaupa Í körfu

Grímsey | Dorte Kuula, ritstjóri frá Danmörku, var í heimsókn í Grímsey ásamt eiginmanni sínum, Henrik Særmark-Thomsen blaðamanni og forstjóra ferðaskrifstofunnar Hannibal og Marco Polo. Dorte ritstýrir helgarferðablaði Jótlandspóstsins. Hún kom einmitt hingað til lands til að kynna fyrir Dönum ferðamöguleika á Norðurlandi. Heimsóknina á heimskautsbauginn og fuglalífið sem er með eindæmum blómlegt þessa júlídaga sagðist Dorte hlakka til að að kynna fyrir lesendum sínum. MYNDATEXTI: Ferðamenn - Dorte og Henrik við höfnina í Grímsey.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar