Nei við nauðgunum

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Nei við nauðgunum

Kaupa Í körfu

"FÓLK á að geta skemmt sér óttalaust um verslunarmannahelgina," segir Arnar Gíslason, einn af talsmönnum karlahóps Femínistafélags Íslands, en hópurinn stendur fyrir átakinu "Karlmenn segja NEI við nauðgunum" fimmtu verslunarmannahelgina í röð í samstarfi við V-dagssamtökin og Jafningjafræðsluna. Fulltrúar átaksins verða á útihátíðinni í Vestmannaeyjum og fjölskylduhátíðinni Einni með öllu! á Akureyri um helgina og munu þar dreifa ókeypis bæklingum, barmmerkjum, límmiðum og svifdiskum til þess að vekja athygli á átakinu og spjalla við vegfarendur. Í dag munu fulltrúar átaksins vera sýnilegir í verslunum ÁTVR á höfuðborgarsvæðinu og á BSÍ á morgun. MYNDATEXTI: Stemning - Lay Low á tónleikum karlahóps Femínistafélagsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar