Erótík

Erótík

Kaupa Í körfu

LÖGREGLUSTJÓRINN á höfuðborgarsvæðinu hefur afturkallað leyfi veitingastaðarins Strawberries í Lækjargötu í Reykjavík til reksturs og var staðnum lokað sl. fimmtudagskvöld. Í samtali við Morgunblaðið segir Jón H. B. Snorrason, starfandi lögreglustjóri í Reykjavík, að starfsemin, sem fram fór á staðnum, hafi ekki reynst samrýmast starfsleyfinu og því hafi staðnum verið lokað. Aðspurður segir hann grun hafa leikið á að nektarsýningar færu fram á staðnum, sem aðeins hafði kráarleyfi. MYNDATEXTI: Klæðalaus dans - Goldfinger var eini staðurinn sem hafði leyfi til nektarsýningar áður en nýju lögin tóku gildi, en þau banna nektarsýningar nema með sérstakri undanþágu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar