Kronnkron

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Kronnkron

Kaupa Í körfu

Herratískan nýtur yfirleitt ekki eins mikillar athygli á Íslandi og tískan fyrir konur gerir, en þó hefur þetta breyst örlítið á síðustu árum með tilkomu fleiri verslana sem selja hágæða tískufatnað fyrir herra á öllum aldri. Þannig hefur t.d. tilkoma Kron kron og Liborius til viðbótar við hina sígildu verslun Sævars Karls tryggt tískumeðvituðum körlum meira úrval og fjölbreytni í fötum. Daglegt líf fór á kreik og skoðaði hvað yrði á boðstólunum fyrir haustið, en haust og vetrartískan er einmitt að koma í hús þessa dagana. MYNDATEXTI: Einfalt - Peter Jensen buxur á 31.900 kr. og B Store jakki á 15.900 kr. skapa einfalt en áhrifaríkt sett. Skórnir eru frá Narrative og kosta 18.900 kr. Kron kron.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar