Menningarnótt 2007

Sverrir Vilhelmsson

Menningarnótt 2007

Kaupa Í körfu

DAGSKRÁ menningarnætur var kynnt í gær í afslöppuðu og notalegu umhverfi, gestir gæddu sér á rjómavöfflum og hreiðruðu margir hverjir um sig í hægindastólum. Var það vel við hæfi; nokkrir íbúar Þingholtanna hyggjast hafa opið hús á menningarnótt og bjóða upp á nýbakaðar vöfflur og rjúkandi kaffi. Þykir téð "Vöfflukaffi" einkar skemmtileg nýlunda á hátíðinni, og endurspegla þær frjálslegu og heimilislegu áherslur sem reynt er að hafa í forgrunni. MYNDATEXTI: Veisla - Haukur Leósson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, fær sér vöfflu með borgarstjóra og húsráðendum á Lokastíg 28, þar sem fundað var.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar