Frumsýning á Homer Simpson

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Frumsýning á Homer Simpson

Kaupa Í körfu

SÉRSTÖK forsýning var haldin á "íslensku útgáfunni" af kvikmyndinni The Simpsons í Smárabíói á fimmtudag. Áður en sýningin hófst var boðið upp á 400 bleika kleinuhringi sem krakkar á öllum aldri gæddu sér á – að hætti Hómers Simpsons – og af andlitum bíógesta að dæma hlökkuðu þeir þó nokkuð til að heyra hvernig hið ástkæra og ylhýra færi einni alræmdustu fjölskyldu veraldar. Eftir því sem næst verður komist var íslensku talsetningunni afar vel tekið og þótti Álfrún Örnólfsdóttir til dæmis fara á kostum sem Lísa Simpson. MYNDATEXTI Fyndnir Örn Árnason leikari stillti sér upp við hliðina á félaga sínum Hómer áður en sýningin hófst.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar