Hjartaþræðing Landspítali - háskólasjúkrahús

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Hjartaþræðing Landspítali - háskólasjúkrahús

Kaupa Í körfu

Með sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík árið 2000 varð til langstærsti vinnustaður landsins með rúmlega 5.000 starfsmönnum í tæplega 4.000 stöðugildum. Ingibjörg Pálmadóttir, sem var heilbrigðisráðherra á þessum tíma, segir sameiningu ekki endanlega lokið fyrr en byggður verði nýr spítali. Stjórnendur Landspítalans telja þó árangur sameiningar þegar mikinn, jafnt faglega sem rekstrarlega. Það hefur ekki verið sársaukalaust að ná þeim markmiðum. Krafist hefur verið aðhalds í rekstri, álag á starfsfólk hefur aukist og deilur hafa risið um stjórnun spítalans. Þá er húsnæðið alltof lítið. Hluta vandans má rekja til sameiningarinnar en spurningin er hins vegar sú hvort lausnin felist í byggingu nýs sjúkrahúss.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar