Gallerí Ágúst

Friðrik Tryggvason

Gallerí Ágúst

Kaupa Í körfu

Í SÍÐUSTU viku greindi Morgunblaðið frá nýju listgalleríi í miðbæ Reykjavíkur - Gallerí Ágúst er í eigu Sigrúnar Söndru Ólafsdóttur, en á morgun, laugardag, verður opnuð vígslusýning þess, FENÓMENA. Sýna þær Ásdís Sif Gunnarsdóttir og hin argentínska Rakel Bernie verk sín. Blaðamanni gafst færi á að líta inn í húsakynnin. Var undirbúningur að sjálfsögðu í fullum gangi; listakonurnar, Sigrún Sandra og ungur aðstoðarmaður þeirra þeyttust til og frá, röðuðu, skipulögðu og spekúleruðu. MYNDATEXTI: Sveiflukenndar - Ásdís og Rakel rannsaka breytilegt síhugarástand kvenna og duttlunga þeirra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar